Veitingahús:
A) Í næsta nágrenni er eitt þekktasta veitingahús í París, og dýrt eftir því, eða svona u.þ.b. með sama verð og tíðkast á Íslandi. Það heitir Ami Louis og býður franskan matseðil - og þar verður að panta borð með löngum fyrirvara. Allar upplýsingar að finna hér: http://uk.holidaysguide.yahoo.com/p-travelguide-1978759-action-describe-ami_louis_l_paris-i
Stysta leið þangað: Upp götuna til vinstri þegar komið er út úr 23 Meslay, u.þ.b. 50 metra, þar sem er Passage du pietons aux Biches, þ.e. port og tröppur, til vinstri. Niður tröppurnar, beint áfram að öðru götuhorni og þar til hægri að öðru húsi.
B) Á sama götuhorni í óhrjálegu húsi er argentískur veitingastaður sem er líka vinsæll og frægur, og mjög góður, þó hann líti út eins og mötuneyti á verkstæði!
C) Við mælum alltaf með Le Petit Prince de Paris í 5. hverfi. Franskur, huggulegur og sérlega góður, og ekki of dýr. Best að panta. Þið finnið hann hér: http://ssa.paris.online.fr/pages/restaurants1.htm
D) Hér eru tveir ágætir “hversdags” staðir fyrir þá sem nenna ekki að laga sér mat en vilja samt ekki eyða miklum peningum; báðir í 15-20 mínútna göngufæri - og á báðum er mjög stutt bið eftir matnum: Chez Hanna er gyðingastaður. Hann er á Rue des Rosiers nr. 54. Falafell Speciale er sniðugasti rétturinn. Les Marronniers er franskur og býður upp á alls kyns smárétti. Hann er á Rue des Archives nr. 18.
E) Rue Mouffetard í 5. hverfi er ein skemmtilegasta gata Parísar með alls kyns verslunum og veitingahúsum. Flestir staðirnir þar bjóða upp á franska sérrétti frá ýmsum héruðum.
F) Þeir sem aldrei hafa verið í París áður ættu að rölta um hverfið sem túristar kalla Latínuhverfið en er í raun aðeins hluti af því hverfi. Þetta er svæðið sem afmarkast af Signu og Boulevard st. Germain annars vegar, og Boulevard st.Michel og Rue st. Jacques hins vegar. Frökkum sjálfum finnst reyndar lítt til hverfisins koma enda eru þarna nánast eingöngu túristar – en veitingastaðir í hverju húsi frá öllum heimsálfum, og eigendurnir standa úti á götu og reyna að lokka til sín viðskiptavini. Matseðlar þar yfirleitt ódýrir en vín getur dregið upp kostnaðinn.
Wednesday, November 14, 2007
Subscribe to:
Comments (Atom)